09.03.05 - 15:16
Magnús Már Einarsson
Brynjólfur í Selfoss (Staðfest)




Sóknarmaðurinn Brynjólfur Bjarnason hefur gengið til liðs við Selfyssinga. Brynjólfur sem er fæddur árið 1974 kemur frá Aftureldingu en með síðarnefnda liðinuskoraði hann 8 mörk í 18 leikjum í annari deildinni síðastliðið sumar.
Brynjólfur er ekki alls ókunnugur Slefyssingum því hann hefur áður leikið með liðinu, síðast árið 2003 þegar að litlu munaði að liðið kæmist upp í fyrstu deild.
