Fotbolti.net
09.03.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Pletikosa til Spartak Moskvu (Staðfest)

Pletikosa grípur boltann í landsleik á Laugardalsvelli árið 2005.

Pletikosa grípur boltann í landsleik á Laugardalsvelli árið 2005.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Spartak Moskva hefur keypt króatíska landsliðsmarkvörðinn Stipe Pletikosa frá úkraínska liðinu Shaktar Donetsk en talið er að kaupverðið sé um þrjár milljónir punda.
Pletikosa sem á 58 landsleiki að baki hefur gert þriggja ára samning við Spartak en hann hefur ekki átt fast sæti í liði Shaktar sem hefur valdið áhyggjum hjá króatíska landsliðinu.

,,Auðvitað er ég ánægður. Ég er að koma til félags, sem líkt og Shaktar hefur mikinn metnað og það sem er ennþá mikilvægara þá mun ég fá að spila reglulega. Það skiptir máli fyrir mig og fyrir landsliðið," sagði hinn 28 ára gamli Pletikosa við dagblaðið Jutarnji List.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.