Fotbolti.net
09.03.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Frans Elvarsson semur við Njarðvík (Staðfest)

Frans (lengst til vinstri) ásamt sínum gömlu félögum í Sindra.

Frans (lengst til vinstri) ásamt sínum gömlu félögum í Sindra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Frans Elvarsson, varnarmaður úr U-17 ára landsliði Íslendinga hefur gert þriggja ára samning við Njarðvík úr fyrstu deild en hann hefur æft með liðinu í vetur.
Frans er uppalinn hjá Sindra á Höfn í Hornafirði og þrátt fyrir ungan aldur var hann fastamaður hjá liðinu í annarri deildinni síðastliðið sumar. Frans er eins og fyrr segir í U-17 ára landsliði Íslendinga en hann er í hópnum sem tekur þátt í milliriðli Evrópumótsins síðar í mánuðinum.

Þá hefur Bjarn Sæmundsson einnig fengið leikheimild að nýju með Njarðvík en hann er laus allra mála hjá Keflavík. Bjarni fór til Keflvíkinga árið 2005 en á síðasta tímabili kom hann aftur til Njarðvíkur, þá á lánssamningi.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.