Fotbolti.net
09.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Glenn Little til Reading á láni (Staðfest)

Glenn Little til Reading á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur fengið kantmanninn Glenn Little að láni frá Portsmouth út þessa leiktíð.
Little, sem er 33 ára, yfirgaf Reading síðastliðið sumar og gekk í raðir Portsmouth.

Hann hefur komið við sögu í átta leikjum hjá Portsmouth í vetur en ekki verið í náðinni að undanförnu og því hefur hann fengið að fara aftur til Reading.

,,Ég veit að Reading á stóran hlut í hjarta Glen,\" sagði Steve Coppell stjóri Reading.

,,Ég vona að hann geti komið sterkur inn næstu tvo mánuðina en það er of snemmt að segja til um hvort að hann sé tilbúinn að berjast um sæti í byrjunarliðinu.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.