Tvöroyrar Bóltfelag, betur þekkt sem TB, var að krækja í afar öflugan liðsstyrk úr röðum Vestra.
Morten Ohlsen er búinn að skrifa undir samning við færeyska félagið en hann er öflugur varnarmaður sem lék 26 leiki á viðburðaríku ári er Vestri varð bikarmeistari og féll úr efstu deild í fyrra.
Morten er 32 ára Dani sem hefur leikið fyrir Vestra síðustu þrjú ár, en þar áður lék hann fyrir Kórdrengi.
Hann er stór og stæðilegur miðvörður sem býr einnig yfir reynslu úr neðri deildum danska boltans.
TB leikur í næstefstu deild í Færeyjum og byrjaði nýtt tímabil á jafntefli um helgina. TB gerði jafntefli við varaliðið hjá NSÍ Runavík, en Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfar aðalliðið í Runavík og leikur Alex Freyr Elísson fyrir félagið.
Athugasemdir


