Fotbolti.net
09.04.10 - 07:20
Hafliði Breiðfjörð

Magnús Karl í Stjörnuna (Staðfest) - Marel og Danry með í kvöld

Ólafur Karl Finsen og Marel Baldvinsson eru báðir komnir með leikheimild með Stjörnunni og geta því spilað gegn Njarðvík í kvöld.  Félagið var að fá nýjan markvörð sem stendur í markinu í kvöld.

Ólafur Karl Finsen og Marel Baldvinsson eru báðir komnir með leikheimild með Stjörnunni og geta því spilað gegn Njarðvík í kvöld. Félagið var að fá nýjan markvörð sem stendur í markinu í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Magnús Karl Pétursson er genginn til liðs við Stjörnuna að nýju eftir nokkurra ára fjarveru og mun verja mark liðsins gegn Njarðvík í Lengjubikarnum í kvöld.
Magnús Karl sem er þrítugur var síðast í Stjörnunni sumarið 2004 þegar hann hætti á miðju tímabili eftir að hafa verið varamarkvörður.

Hann snýr nú aftur í raðir félagsins en síðast lék hann í marki liðsins sumarið 2003 er hann lék 9 leiki í 1. deildinni. Hann var á mála hjá KFG á síðasta ári án þess að leika með liðinu en hefur leikið með Núma og Álftanesi undanfarin ár.

Magnús Karl mun verja mark liðsins í Lengjubikarnum í kvöld þar sem Bjarni Þórður Halldórsson markvörður liðsins er meiddur á nára og óvíst hvenær hann verður klár að nýju.

Stjarnan mun tefla fram gríðarlega sterku liði í kvöld en þeir Marel Baldvinsson og Dennis Danry sem gengu til liðs við félagið á dögunum eru báðir komnir með leikheimild og verða með.

Þá hefur félagið einnig fengið Atla Jóhannsson og Ólaf Karl Finsen en Halldór Orri Björnsson sem lék með þeim í fyrra er á láni í Þýskalandi og snýr ekki aftur fyrr en í maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.