Fotbolti.net
09.04.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Guiseppe \"Joe\" Funicello í Þór (Staðfest) - Áfram á reynslu

Guiseppe \"Joe\" Funicello í Þór (Staðfest) - Áfram á reynslu
Canon

Mynd: Heimasíða Þórs

Ítalski leikmaðurinn Guiseppe \"Joe\" Funicello hefur fengið leikheimild með Þór. Joe er 22 ára gamall en hann getur leikið sem bakvörður, kantmaður og á miðjunni.
Joe kom til Þórs á reynslu í síðasta mánuði en hann lék þá æfingaleik með liðinu gegn KA.

Hann fór síðan af landi brott og fékk samningstilboð annars staðar en ákvað þrátt fyrir að að koma aftur til Íslands.

Á heimasíðu Þórs kemur fram að Joe leyst afar vel á allar aðstæður hjá Þór og klúbbinn í heild í fyrri heimsókn sinni og óskaði eftir því að fá að koma aftur til reynslu.

Því mun hann æfa áfram með Þór á næstunni og hann hefur einnig fengið leikheimild sem þýðir að hann getur leikið með liðinu í Lengjubikarnum.

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.