Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 09. apríl 2020 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
United nýtir sér ákvæði og framlengir við Fosu-Mensah
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur nýtt sér ákvæði í samningi sínum við Timothy Fosu-Mensah.

Samningur Fosu-Mensah framlengist því sjálfkrafa um eitt ár.

Hollendingurinn varð 22 ára í janúar en hann hefur verið að glíma við meiðsli á leiktíðinni og einungis tekið þátt í tveimur leikjum með varaliðinu á leiktíðinni.

Fosu-Mensah hefur alls leikið 12 deildarleiki fyrir United en hann var lánaður til Fulham á síðustu leiktíð og Crystal Palace leiktíðina þar áður.

Hann á einnig þrjá A-landsliðsleiki fyrir Holland að baki. Hann getur bæði spilað sem miðvörður eða djúpur miðjumaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner