09.05.05 - 14:27
Elvar Geir Magnússon
Rob Hulse til Leeds (Staðfest)

Rob Hulse.


Rob Hulse.

Rob Hulse sóknarmaður West Bromwich Albion er genginn til liðs við Leeds United í ensku 1.deildinni. Kaupverðið gæti farið upp i 1,1 milljón punda ef hann stendur sig vel með liðinu. Hulse er 25 ára og hefur seinustu þrjá mánuði spilað með Leeds á lánssamningi.
Hulse hefur sett stefnuna á að skora að minnsta kosti 20 mörk næsta tímabil en hann hefur hingað til gert sex mörk í 13 leikjum fyrir Leeds. Kevin Blackwell stjóri Leeds ákvað að leggja áherslu á það að fá Hulse og nú hefur hann fengið ósk sína uppfyllta.
Hulse kostaði WBA 800.000 pund þegar hann var keyptur frá Crewe fyrir tveimur árum.
Hulse kostaði WBA 800.000 pund þegar hann var keyptur frá Crewe fyrir tveimur árum.
