09.05.07 - 16:37
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Darcheville til Rangers í sumar (Staðfest)

Darchville í baráttu við Sami Hyypia

Mynd: Getty Images

Darchville í baráttu við Sami Hyypia

Mynd: Getty Images
Jean-Claude Darcheville, sóknarmaður Bordeaux, mun ganga til liðs við skoska félagið Glasgow Rangers í sumar og er honum ætlað að fylla skarð Dado Prso sem er á förum.
Þessi 31 árs gamli sóknarmaður, sem verður samningslaus hjá franska félaginu í sumar, skrifaði undir tveggja ára samning á Ibrox.
Rangers greindu frá því að þeir höfðu betur í baráttu við nokkur frönsk félög, þar á meðal Monaco, í baráttu um kappann sem er kallaður 'Eldflaugin'.
Rangers greindu frá því að þeir höfðu betur í baráttu við nokkur frönsk félög, þar á meðal Monaco, í baráttu um kappann sem er kallaður 'Eldflaugin'.
Heimild: BBC
