09.05.08 - 22:01
Hafliði Breiðfjörð
Hólmar Örn og Hörður Sveinsson í Keflavík (Staðfest)

Hólmar og Hörður í K-húsinu ásamt Kristjáni Guðmundssyni þjálfara Keflavíkur í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Hólmar Örn Rúnarsson og Hörður Sveinsson eru gengnir í raðir Keflvíkur frá Silkeborg í Danmörku en þetta var staðfest á fréttamannafundi í K-húsinu í Keflavík rétt í þessu þar sem leikmennirnir skrifuðu undir þiggja ára samning við félagið. Þeir verða báðir í leikmannahópi liðsins sem mætir Íslandsmeisturum Vals á Sparisjóðsvellinum í Keflavík klukkan 16:15 á morgun.
Við greindum frá því fyrr í vikunni að þeir væru á förum frá Silkeborg og gætu mögulega komið til Íslands en þeirra uppeldisfélag, Keflavík hafði svo betur í baráttunni um um þá og gekk frá samningum við þá í kvöld.
,,Við erum alveg sérstaklega ánægð með að fá okkar Keflvíkinga aftur í liðið. Okkur skildist á fréttamönnum í dag að við værum að hringla í spánni en okkur er alveg sama um það og verðum á góðu róli í sumar," sagði Hjördís Baldursdóttir fjölmiðlafulltrúi Keflavíkur á fréttamannafundinum í kvöld.
Hörður gekk til liðs við Silkeborg frá Keflavík 31. janúar 2006 en tímabilið á undan hafði hann vakið mikla athygli í Landsbankadeildinni er hann skoraði 9 mörk í 17 leikjum með Keflavík í deildinni auk þess að eiga fast sæti í U21 árs landsliðinu.
Hólmar Örn gekk í raðir Silkeborg frá Keflavík 31. ágúst 2006 en þá hafði hann leikið 15 leiki með Keflavík í Landsbankadeildinni og skoraði í þeim eitt mark.