Fotbolti.net
09.05.11 - 11:17
Magnús Már Einarsson

Nuri Sahin til Real Madrid (Staðfest)

Nuri Sahin til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Real Madrid hefur keypt miðjumanninn Nuri Sahin frá Borussia Dortmund en félagaskiptin ganga formlega í gegn í sumar. Kaupverðið er talið vera á bilinu 10-12 milljónir evra.
Sahin, sem er 22 ára gamall Tyrki, varð á dögunum þýskur meistari með liði Dortmund.

Sahin varð yngsti leikmaður þýsku Bundesligunnar frá upphafi og yngsti markaskorari deildarinnar þegar hann var 16 ára gamall árið 2005.

Tímabilið 2007/2008 var Sahin í láni hjá Feyenoord en samtals hefur hann skorað 13 mörk í 135 leikjum með Dortmund á ferli sínum.

Á þessu tímabili hefur Sahin skorað sex mörk og lagt upp átta með Dortmund.

Heimild: Heimasíða Real Madrid

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.