09.06.09 - 15:21
Magnús Már Einarsson
Luiz Felipe Scolari tekur við liði í Úsbekistan (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson


Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Luiz Felipe Scolari hefur verið ráðinn þjálfari Bunyodkor í Úsbekistan en frá þessu greindi félagið í dag.
Scolari, sem er sextugur, hefur gert eins og hálfs árs samning við Bunyodkor en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan hann var rekinn frá Chelsea í februar.
Bunyodkor varð tvöfaldur meistari í Úsbekistan á síðustu leiktíð og komst í undanúrslit í Meistaradeild Asíu.
Zico var þá þjálfari liðsins en hann hætti í desember til að taka við liði CSKA Moskvu.
Bunyodkor varð tvöfaldur meistari í Úsbekistan á síðustu leiktíð og komst í undanúrslit í Meistaradeild Asíu.
Zico var þá þjálfari liðsins en hann hætti í desember til að taka við liði CSKA Moskvu.
Heimild: Reuters
