09.06.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Manzano tekur við Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gregorio Manzano hefur verið ráðinn þjálfari Atletico Madrid en félagið staðfesti þetta í gær.
Þessi 55 ára gamli þjálfari tekur við af Quique Sanchez Flores sem hætti eftir að Atletico endaði í sjöunda sæti á nýliðnu tímabili.

Manzano þekkir til hjá Atletico Madrid því hann þjálfaði liðið frá 2003/2004.
Á síðasta tímabili var Manzano þjálfari Sevilla en hann var látinn fara eftir að liðið endaði í fimmta sætinu og missti af Meistaradeildarsæti.
Manzano hefur einnig stýrt Malaga og Real Mallorca á þjálfaraferli sínum en hann byrjaði að þjálfa árið 1983.

Heimild: Sky