09.06.11 - 13:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Miroslav Klose til Lazio (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Lazio hefur samið við þýska sóknarmanninn Miroslav Klose en hann kemur á frjálsri sölu frá Bayern München.
Samningur hans við Bayern rennur út í sumar en ekki náðist samkomulag um framlengingu á samning hans. Klose, sem fagnar 33. ára afmæli sínu í dag, yfirgefur þar með Bayern og heldur til Rómaborgar á Ítalíu. Þar hefur hann staðist læknisskoðun og skrifað undir tveggja ára samning við Lazio.
Klose hefur verið lítið í sviðsljósinu frá því hann kom til Bayern fyrir fjórum árum. Á nýliðnu tímabili skoraði hann einungis eitt mark í deildinni en samtals hefur hann spilað 98 deildarleiki fyrir Bayern og skorað í þeim 24 mörk.
Samt sem áður er Klose næst markahæsti leikmaður Þýskalands allra tíma. Hann hefur skorað 61 mark fyrir þýska landsliðið og til að mynda varð hann markakóngur á HM í Þýskalandi árið 2006.