09.06.11 - 19:38
Hafliði Breiðfjörð
Jordan Henderson til Liverpool (Staðfest)

Jordan Henderson er orðinn leikmaður Liverpool.

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur gengið frá kaupum á Jordan Henderson sem komst í gegnum læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifaði svo undir samning.
Henderson sem er tvítugur kemur frá Sunderland. Hann hafði komið til Liverpool borgar í morgun eftir að samkomulag náðist við Sunderland um kaupverð.
Hann er fyrstu kaup Liverpool á árinu og semur til langs tíma. Þess er þó ekki getið hversu langur samningurinn er. Hann fer nú til Danmerkur þar sem hann leikur á Evrópumóti U21 árs landsliða.
Sunderland hafði áður hafnað tilboði Liverpool sem var talið vera upp á 16 milljónir punda. David Ngog gæti enn farið í hina áttina sem hluti af kaupunum en það hefur ekki enn verið staðfest.

Heimild: BBC | Vefur Liverpool