Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 12:00
Atli Arason
Auburn, Alabama
Arnar: Þetta var sagt í bræði
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands.
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands.
Mynd: Matthías Már

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson segist ekki hafa sent bréf á FIFA vegna nýju reglugerðarinnar sem IFAB, Alþjóðlega knattspyrnuráðið, kynnti til leiks í aðdraganda heimsmeistaramótsins.


Reglan tilgreinir að ef leikmaður sem er á leið af velli, yfirgefur leikvöllinn ekki innan 10 sekúnda þá fær innáskiptingin ekki að koma inn á völlinn, fyrr en í næsta leikstoppi eftir að ein mínúta er liðinn af leiktímanum. Liðið sem gerði skiptinguna verður þá að spila einum leikmanni færri í þann tíma. Eftir leikinn gegn Japan sagðist Arnar ætla að láta FIFA vita af sínu áliti í bréfaskriftum til knattspyrnusambandsins.

Nei ég hef ekki sent þeim neitt bréf,“ sagði Arnar og hló, aðspurður út í bréfið. „Ég var bara úrillur eftir tap eins og kann að vera, þetta var sagt í bræði. Fyrir mér er þetta samt skrítin regla. Ef einhver er að tefja leikinn þá á dómarinn að bæta því við í uppbótatíma. Jakkafötin ráða of miklu í þessum fallega leik sem fótboltinn er. Dómarinn er augljóslega að reyna að gera sitt besta en þetta er bara kjánaleg regla. Kannski mun eitthvað gerast á HM sem sannar að ég hef rangt fyrir mér en við höfum ekki góða reynslu af henni eins og gerðist í Japan,“ bætti Arnar við. 

Arnar var einmitt ekki par sáttur eftir tapið gegn Japan á dögunum, sér í lagi þar sem sigurmark Japans, kom einmitt á þeim tíma sem liðið þurfti að spila einum leikmanni færri eftir að Kristian Nökkvi Hlynsson yfirgaf völlinn ekki innan 10 sekúndna þegar Ísak Snær Þorvaldsson átti að koma inn fyrir Kristian. Landsliðið er þó betur undirbúið undir álíka uppákomu fyrir leikinn gegn Argentínu.

Já þetta hefur haft áhrif á undirbúninginn. Við erum augljóslega enn meira varir um okkur. Reglur eru reglur og við þurfum að fara eftir þeim. Við erum búnir að eiga samtal við leikmennina okkar um þetta. Það er eðlilegt að eiga samtal við leikmennina um breytingar í leiknum,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands. 


Slapp
banner
banner