Tottenham færist nær í viðræðum við Manchester City, portúgalskur varnarmaður orðaður við Liverpool Manchester United gefur ekki upp vonina um Anderson og Cucurella gæti farið til Spánar. Þetta og fleira í slúðurpakkanum.
Tottenham er komið vel á veg í viðræðum um 60 milljóna punda kaup á brasilíska kantmanninum Savinho (22) frá Manchester City. (Mail)
Liverpool leitar að varnarmanni í stað Ibrahima Konate en meðal nafna á lista er hinn portúgalski Goncalo Inacio (24) hjá Sporting Lissabon. (Caughtoffside)
Atalanta er í viðræðum við Nottingham Forest um að fá ítalska miðvörðinn Nicolo Savona (23) aftur í ítölsku A-deildina. (Goal)
Manchester United telur sig enn geta skákað Manchester City í baráttunni um enska miðjumanninn Elliot Anderson (23) hjá Nottingham Forest. Hann er metinn á um 100 milljónir punda af Forest. (Guardian)
Anderson er sagður hafa lýst yfir vilja til að ganga í raðir Manchester City frekar en Manchester United. (TalkSport)
Atletico Madrid og Barcelona eru í bestu stöðunni til að geta fengið Marc Cucurella (26) frá Chelsea. Spænski varnarmaðurinn vill breyta um umhverfi eftir fjögur ár á Stamford Bridge. (Marca)
Newcastle vill fá senegalska miðjumanninn Lamine Camara (22) frá Mónakó ef Sandro Tanoli (26) eða Joe Willock (26) yfirgefa St James' Park í sumar. (Telegraph)
Njósnarar Manchester United hafa fylgst með ítalska sóknarmanninum Pio Esposito (20) hjá Inter í vináttulandsleikjum Ítalíu. (TeamTalk)
Eftir að hafa tryggt sér Kieran Trippier (35) eru Úlfarnir nú í viðræðum við mexíkóska sóknarmanninn Raul Jimenez (35) um að snúa aftur til félagsins. Jimenez er að yfirgefa Fulham á frjálsri sölu en hann skoraði 57 mörk í 166 leikjum fyrir Wolves 2018 - 2023. (BBC)
Franski sóknarmaðurinn Randal Kolo Muani (27) hjá Paris St-Germain, sem var á láni hjá Tottenham, vill snúa aftur til Juventus þar sem hann lék á láni á síðasta ári. (Tuttosport)
Manchester City hefur áhuga á brasilíska kantmanninum Rodrygo (25) hjá Real Madrid og senegalska vængmanninum Iliman Ndiaye (26) hjá Everton. (Mail)
AC Milan ætlar að ræða nánar við Oliver Glasner, fyrrum stjóra Crystal Palace. (Calciomercato)




