Fotbolti.net
09.07.07 - 11:15
Magnús Már Einarsson

Laudrup tekur við Getafe af Schuster (Staðfest)

Laudrup í leik með Barcelona á sínum tíma.

Laudrup í leik með Barcelona á sínum tíma.

Canon

Mynd: Getty Images

Getafe hefur ráðið Michael Laudrup sem þjálfara en hann tekur við af Bernd Schuster sem er hættur með liðið en hann var ráðinn þjálfari Real Madrid fyrr í dag.
Laudrup sem er 43 ára gerði tveggja ára samning við Getafe en félagið gerði fína hluti á síðasta tímabili og náði sæti í Evrópukeppni félagsliða.

Laudrup þekkir vel til spænska boltans en hann lék á sínum tíma bæði með Barcelona og Real Madrid. Hann þjálfaði Bröndby í heimalandinu 2002-2006 auk þess sem hann var aðstoðarþjálfari danska landsliðsins á sínum tíma.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.