09.07.07 - 14:55
Magnús Már Einarsson
Diomansy Kamara til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fulham hefur keypt senegalska framherjann Diomansy Kamara frá West Bromwich Albion og er talið að kaupverðið hljóði upp á sex milljónir punda.
Kamara bað um að fá að fara frá WBA í vor eftir að liðinu mistókst að komast upp í ensku úrvalsdeildina í vor og hann hefur núna gert fimm ára samning við Fulham.
WBA og Fulham hafa átt í viðræðum vegna Kamara að undanförnu. Meðal annars vildi WBA fá Heiðar Helguson sem hluta af kaupverðinu en Dalvíkingurinn sterki verður áfram hjá Fulham.
Kamara er þriðji leikmaðurinn sem að Lawrie Sanchez fær til Fulham í sumar en áður höfðu Steven Davis og Aaron Hughes komið til félagsins.

Heimild: BBC