Fotbolti.net
09.07.08 - 06:00
Guðmundur Dagur Ólafsson
Ítalska deildin

Amoruso til Torino (Staðfest)

Amoruso til Torino (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Reggina hefur selt framherjann reynda, Nicola Amoruso til Torino en þessi 33 ára gamli Ítali gegndi lykilhlutverki í að bjarga liði Reggina frá falli á síðustu leiktíð.
Hann hafði verið sterklega orðaður við Lazio undanfarið en viðræður við félagið slitnuðu og þá ákvað Torino að reyna að fá hann til sín.

Amoruso, sem lék áður með Juventus, spilaði með Reggina í þrjú ár en kaupverðið á honum er ekki gefið upp og ekki er sagt hve langur samningur hans verður við Torino.

Þessi kaup gætu orðið til þess að Rolando Bianchi, framherji Manchester City, fari ekki til Torino en talið var að hann myndi ganga til liðs við liðið fljótlega.

„Reggina vill tilkynna það að við höfum selt Amoruso til Torino og verða félagsskiptin endanleg,\" sagði á heimasíðu Reggina.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.