09.07.08 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ungverskur táningur til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Aðalsteinsson

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur fengið til sín að láni ungverjann Zsolt Poloskei, sem leikur með MTK í heimalandi sínu.
Poloskei, sem er 17 ára gamall var einn af þrem leikmönnum sem var á reynslu hjá Liverpool í seinustu viku, og ákvað félagið því að fá hann til sín að láni út næsta tímabil.
Þessum ungverska miðvallarleikmanni tókst að hrífa þjálfarateymi Liverpool upp úr skónum, og verður því að spila með varaliði Liverpool og ef vel gengur spreytir hann sig með aðalliðinu.
Hann ætti að kunna vel við sig hjá Liverpool, en þegar eru þrír landar hans þarna, þeir Peter Gulacsi, markvörður, Krisztian Nemeth og Andras Simon, framherjar en þeir komu á svipuðum samningum til félagsins frá MTK.

Heimild: Sky