Fotbolti.net
09.07.08 - 12:49
Davíð Örn Atlason

Johnny Heitinga til Atletico Madrid (Staðfest)

Johnny Heitinga til Atletico Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Johnny Heitinga er genginn í raðir Atletico Madrid frá hollenska liðinu Ajax. Atletico hafði tryggt sér Heitinga í mars, en hann verður kynntur fyrir stuðningsmönnum liðsins á morgun.
Heitinga, sem getur spilað sem hægri bakvörður og miðvörður skrifaði undir fimm ára samning við félagið og er kaupverðið talið vera um tíu milljónir punda.

Atletico munu líklega spila í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili, en þeir þurfa að fara í gegnum undankeppni.

Auk Heitinga hafa Tomas Ujfalusi, Gregory Coupet, Florent Sinama Pongolle og Paulo Assuncao gengið til liðs við Atletico Madrid.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.