09.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Marc-Antoine Fortune til Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Celtic hefur keypt framherjann Marc-Antoine Fortune frá Nancy á 3,8 milljónir punda.
Fortune hefur gert þriggja ára samning við skoska félagið en hann er búinn að standast læknisskoðun.
Fortune gat valið á milli Celtic og Hull en hann ákvað að ganga í raðir fyrrnefnda félagsins.
,,Þetta er staðurinn þar sem ég vil vera. Eftir að hafa hitt fólkið hjá félaginu og heyrt allt um frábæran stuðning þess þá sá ég framtíð mína hérna,\" sagði Fortune.
Fortune þekkir Tony Mowbray stjóra Celtic eftir að hafa verið á láni hjá WBA síðari hluta síðasta tímabils.

Heimild: BBC