Fotbolti.net
09.07.09 - 20:16
Davíð Örn Atlason

Karim Benzema til Real Madrid (Staðfest)

Karim Benzema til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Karim Benzema er nú opinberlega genginn í raðir Real Madrid frá Lyon, en hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið.
Kaupverðið á leikmanninum er 35 milljónir evra, en það gæti hækkað upp í 41 milljón evra ef að hann stendur sig vel.

Benzema er ekki fyrsti leikmaðurinn sem að gengur í raðir Real í sumar, en fyrir höfðu þeir Kaka, Raul Albiol og Cristiano Ronaldo gengið í raðir félagsins.

Eftir að hafa skrifað undir samninginn fór Benzema út á Santiago Bernabeu og var kynntur fyrir framan 15 þúsund áhorfendur.

Heimild: Vefsíða Real Madrid

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.