Fotbolti.net
09.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jose Moreira til Swansea (Staðfest)

Jose Moreira til Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur keypt markvörðinn Jose Moreira frá Benfica í Portúgal en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Moreira skrifaði undir tveggja ára samning við Swansea sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni.

Swansea hefur verið í leit að markverði síðan Dorus De Vries fór til Wolves á dögunum.

Moreira mun nú fylla stöðu hans en hann hefur leikið yfir 100 leiki með Benfica á löngum ferli sínum hjá Benfica.

,,Ég hef verið hjá Benfica í tólf ár og þó að það sé erfitt að fara þá þurfti ég nýja áskorun,\" sagði Moreira.

Moreira á einn landsleik að baki með Portúgal en hann var í landsliðshópnum á EM 2004.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.