Fotbolti.net
09.07.11 - 11:41
Magnús Már Einarsson

Kris Boyd til Eskisehirspor (Staðfest)

Kris Boyd til Eskisehirspor (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Eskisehirspor hefur keypt framherjann Kris Boyd frá Middlesbrough.

Kaupverðið var ekki gefið upp en Boyd skrifaði undir þriggja ára samning við Eskisehirspor.
Þessi 27 ára gamli Skoti kom til Boro frá Rangers í fyrra en náði sér ekki á strik og var á endanum lánaður til Nottingham Forest.

Hjá Eskisehirspor hittir Boyd fyrir framherjann Diomansy Kamara sem kom til félagsins frá Fulham fyrr í sumar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.