Fotbolti.net
09.08.07 - 15:14
Magnús Már Einarsson

Francis Jeffers til Sheffield Wednesday (Staðfest)

Francis Jeffers til Sheffield Wednesday (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield Wednesday sem leikur í ensku Championship deildinni hefur keypt framherjann Francis Jeffers frá Blackburn Rovers fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 26 ára gamli leikmaður gerði þriggja ára samning við miðvikudagsliðið eftir að félagaskipti hans til Ipswich í síðasta mánuði gengu til baka.

Arsenal keypti Jeffers frá Everton á átta milljónir punda í júní 2001. Hann fann sig aldrei hjá Arsenal og fór síðan til Charlton á 2,6 milljónir punda árið 2004.

,,Ég trúi því að hann geti skorað reglulega fyrir okkur í Championship deildinni. við höfum verið í leit að háklassa framherja og höfum fengið hann klárlega," sagði Brian Laws stjóri Sheffield Wednesday.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.