09.08.07 - 15:43
Sindri Þór Þorgeirsson
Otto Addo til HSV (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýska liðið Hamburg sem leikur í Bundesligunni, hefur gengið frá samningi við varnarmanninn Otto Addo en hann kemur til þeirra frítt eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá liði Mainz, sem að féll úr Bundesligunni í fyrra.
Þetta kemur mjög á óvart þar sem Hamburg höfðu fyrr í sumar fengið hann til liðs við sig til að spila með varaliði félagsins í 3.deild auk þess sem hann átti að hjálpa til í þjálfaraliði félagsins. En hann heillaði þjálfara félagsins það mikið að þeir ákváðu að fá hann til að skrifa undir hjá aðalliðinu.
Addo sem er 33 ára gamall, kemur frá Ghana og hefur leikið 15 landsleiki fyrir landsliðið, hann hefur ekki spilað með landsliðinu síðan á HM í Þýskalandi fyrir ári síðan en hann vonast til þess að þetta muni hjálpa honum að komast í liðið fyrir Afríkukeppnina seinna á árinu.

Heimild: BBC