09.08.07 - 16:40
Sindri Þór Þorgeirsson
Roy O'Donovan til Sunderland (Staðfest)

Roy Keane er búinn að næla sér í sjö leikmenn í sumar

Mynd: Getty Images

Roy Keane er búinn að næla sér í sjö leikmenn í sumar

Mynd: Getty Images
Sunderland gengu í dag frá kaupunum á írska sóknarmanninum Roy O'Donovan frá írska liðinu Cork City. Kaupverðið er talið vera um 500 þúsund pund en gæti hækkað í 1 milljón punda ef hann spilar ákveðið marga leiki fyrir félagið.
O'Donovan sem verður 22 ára á morgun skrifaði undir 3 ára samning við Sunderland en hann hafnaði tilboði frá Fulham en þeir höfðu mikinn áhuga á að fá drenginn til liðs við sig og höfðu gert tilboð í O'Donovan, sem varð markahæsti leikmaður írsku úrvalsdeildarinnar í fyrra.
,,Þetta er stór áskorun fyrir mig og þegar tækifærið bauðst mér þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um," sagði Írinn og bætti við: ,,Ég gat valið milli Sunderland og Fulham en þegar ég talaði við þjálfarann [Roy Keane], var ég ákveðinn. Allir hjá klúbbnum eru metnaðargjarnir og ég vil vera hluti af því," sagði O'Donovan að lokum.

Heimild: Sky Sports