Fotbolti.net
09.08.11 - 11:00
Hörður Snævar Jónsson

Obertan til Newcastle (Staðfest)

Obertan til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur fest kaup á Gabriel Obertan kantmanninum franska frá Manchester United.
Obertan skrifaði undir fimm ára samning við Newcastle í dag.

Hann gekk í raðir Manchester United árið 2009 en hann kom við sögu í fimmtán leikjum á síðustu leiktíð.

,,Gabriel er leikmaður sem ég hef fylgst með síðan hann kom til Manchester United,\" sagði Alan Pardew stjóri Newcastle.

,,Hann er snöggur og með frábæra tækni og hann hefur bætt sig síðustu tólf mánuðina og er núna klár í að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni.\"

Heimild: Heimasíða NUFC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.