09.08.11 - 16:32
Magnús Már Einarsson
Radosav Petrovic til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn Rovers hefur keypt miðjumanninn Radosav Petrovic frá Partizan Belgrad.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en þessi 22 ára gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra ára samning.

Petrovic á að baki 19 landsleiki með Serbíu en hann lék sinn fyrsta landsleik árið 2009.
Hann gæti leikið sinn fyrsta leik með Blackburn gegn Wolves í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag.
Petrovic er annar leikmaðurinn sem Blackburn krækir í núna í sumar en skoski framherjinn David Goodwillie kom einnig frá Dundee í síðustu viku.

Heimild: BBC