09.08.11 - 17:00
Hafliði Breiðfjörð
Matthew Upson í Stoke City (Staðfest)

Matthew Upson er kominn til Stoke.

Mynd: Getty Images

Matthew Upson er kominn til Stoke.

Mynd: Getty Images
Stoke City staðfesti rétt í þessu á vef sínum að varnarmaðurinn Matthew Upson sé genginn til liðs við félagið frá West Ham en hann kemur frítt.
Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Stoke City og er annar miðvörðurinn sem félagið fær í sumar, áður kom Jonathan Woogdate einnig frítt.
Upson sem er 32 ára gamall hefur leikið 21 landsleik fyrir enska landsliðið og lék með því á Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku í fyrrasumar.
Samningur hans við West Ham United rann út þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.
,,Þetta er annar frábær samningur fyrir þetta fótboltafélag þegar maður tekur með í reikninginn gæði og reynslu drengsins og þá staðreynd að hann kemur frítt,\" sagði Tony Pulis stjóri Stoke.
,,Við höfum núna styrk og breidd í vörninni með bæði Matthew og Jonathan um borð og höfum náð því án þess að láta verulegar fjárhæðir í kaupin sem er merkilegt á markaðnum nú til dags þegar verðin eru há.\"

Heimild: Vefur Stoke