Fotbolti.net
09.09.10 - 19:25
Ívan Guðjón Baldursson

Carlos Queiroz rekinn (Staðfest)

Nýr þjálfari stýrir liðinu í fyrsta alvöru leik þess gegn Íslandi

Carlos Queiroz rekinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Carlos Queiroz hefur verið látinn taka pokann sinn í kjölfarið af lélegum frammistöðum landsliðsins gegn Kýpur á heimavelli og Noregi á útivelli í undankeppni EM 2012.
Queiroz var meinað að þjálfa portúgalska landsliðið í hálft ár eftir skandal á HM þar sem sagt er að hann hafi stöðvað lyfjapróf og látið ófögur orð fljúga í garð læknanna sem áttu að framkvæma lyfjaprófin.

Queiroz sagðist ætla að áfrýja banninu en á meðan gerði liðið 4-4 jafntefli á heimavelli gegn Kýpur og tapaði 1-0 á útivelli gegn Noregi.

Gilberto Madail forseti portúgalska knattspyrnusambandsins tilkynnti á blaðamannafundi að ,,Samning Carlos Queiroz hefur verið rift og er hann því ekki lengur þjálfari landsliðsins.\"

Portúgalir mæta Íslendingum á Laugardalsvellinum þann 12. október næstkomandi og verður áhugavert að sjá hvernig þeim portúgölsku mun ganga þá.

Heimild: ESPN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.