09.10.07 - 16:23
Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Jóhannsson tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Bjarni Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá undirritun samningsins. Bjarni ásamt Andrési B. Sigurðssyni formanni Knattspyrnudeildar Stjörnunnar, Ragnari Árnasyni form. meistaraflokksráðs karla og Snorra Olsen formanni UMF Stjörnunnar.

Mynd: Stjarnan

Bjarni Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Jóhannsson var í dag ráðinn þjálfari 1. deildarliðs Stjörnunnar og skrifaði undir þriggja ára samning þess efnis við félagið í hádeginu.
,,Knattspyrnudeild Stjörnunnar bindur miklar vonir við komu Bjarna til félagsins og er stefnan sett á sæti í Landsbankadeildinni að ári, en Stjarnan lék síðast í efstu deild árið 2000," sagði í yfirlýsingu frá félaginu nú seinni partinn.
Bjarni sem er íþróttakennari að mennt verður fimmtugur á næsta ári. Hann hóf þjálfaraferil sinn árið 1985 er hann þjálfaði Þrótt frá Neskaupsstað í þriðju efstu deid og tveimur árum síðar tók hann við Tindastól sem hann stýrði í þrjú sumur.
Þaðan fór hann til Grindavíkur sem hann stýrði í næst efstu deild 1991-1992 og tók svo við Fylki í sömu deild 1994. Árið 1995 stýrði hann fyrst liði í efstu deild en það var lið Breiðabliks sem hann stýrði í eitt sumar.
Þá var komið að hátindi Bjarna á þjálfaraferlinum þegar hann tók við liði ÍBV sem hann stýrði 1997-1999. Fyrri tvö árin gerði hann liðið að Íslandsmeisturum og þriðja árið enduðu þeir í öðru sæti deildarinnnar. Fyrri tvö árin komst ÍBV einnig í bikarúrslit og vann bikarinn í síðara skiptið.
Bjarni tók svo við nýliðum Fylkis í efstu deild árið 2000 og árangurinn frábær því á fyrsta ári í efstu deild átti liðið möguleika á Íslandsmeistaratitlinum þar til lokaflautið gall í lokaumferðinni en endaði í öðru sæti á eftir KR auk þess að komast í undanúrslitaleik bikarsins. Hann stýrði Fylki einnig árið eftir en þá enduðu þeir í fimmta sæti deildarinnar og urðu bikarmeistarar.
Nokkuð óvænt hætti hann þó með Fylki eftir það og tók við Grindavík fyrir tímabilið 2002 og liðið endaði í þriðja sæti deildarinnar. Árið eftir bjargaði Grindavík sér frá falli í lokaumferðinni og Bjarni hætti að tímabilinu loknu með liðið og ákvað að taka við Breiðablik sem lék í 1. deildinni.
Fyrsta ár Breiðabliks undir stjórn Bjarna, 2004, endaði liðið í fjórða sæti deildarinnar en árið eftir rúlluðu þeir yfir deildina og komust upp í efstu deild. Er tímabilið var hálfnað sumarið 2006 sagði Bjarni starfi sínu lausu eftir ósigur gegn 1. deildarliði KA í 16 liða úrslitum VISA-bikarsins en liðið var þá í næst neðsta sæti Landsbankadeildarinnar.
Bjarni hafði þá þegar verið byrjaður sem aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands og er enn í dag aðstoðarmaður Eyjólfs Sverrissonar með landsliðið.