09.10.09 - 13:16
Magnús Már Einarsson
Gavin Hoyte til Brighton á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brighton, sem leikur í þriðju efstu deild á Englandi, hefur fengið Gavin Hoyte varnarmann Arsenal á láni.
Hoyte er 19 ára gamall hægri bakvörður en hann kemur til með að hjálpa Brighton í meiðslavandræðum liðsins.
Hoyte hefur leikið nokkra leiki með aðalliði Arsenal en hann var einnig í láni hjá Watford á síðari hluta síðustu leiktíðar.
Justin Hoyte, eldri bróðir hans, er einnig fyrrum leikmaður Arsenal en hann er núna hjá Middlesbrough.

Heimild: BBC