09.11.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ruud Gullit ráðinn þjálfari LA Galaxy (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ruud Gullit hefur verið ráðinn þjálfari David Beckham og félaga í LA Galaxy en frá þessu var gengið í gær.
Gullit tekur við starfinu af Frank Yallop sem hætti með LA Galaxy á dögunum til að taka aftur við þjálfun San Jose Earthquakes.
Yallop hætti eftir erfitt tímabil með LA Galaxy en annað árið í röð komst liðið ekki í úrslitakeppnina í MLS deildinni.
Gullit sem er 45 ára gamall Hollendingur var frábær leikmaður á sínum tíma og lék meðal annars með AC Milan, Sampdoria og Chelsea en hann hefur einnig fengist við þjálfun á ferlinum.
Hann stýrði meðal annars Chelsea og Newcastle en síðast var hann þjálfari Feyneoord árið 2005.

Heimild: BBC