Fotbolti.net
09.11.09 - 08:53
Hafliði Breiðfjörð

Þóra best í Noregi - samdi við LdB Malmö (Staðfest)

Þóra Björg Helgadóttir.

Þóra Björg Helgadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þóra Björg Helgadóttir markvörður íslenska landsliðsins var í gærkvöld útnefnd besti leikmaður norsku deildarinnar en það voru aðrir leikmenn sem völdu. Hún er gengin til liðs við LdB Malmö í Svíþjóð.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun en þar segir að Þóra hafi gert þriggja ára samning við sænska félagið.

Í viðtali við Morgunblaðið segist Þóra hafa haft úr mörgum kostum að velja en valdi LdB Malmö í Svíþjóð en systir hennar, Ásthildur Helgadóttir býr einnig í Svíþjóð.

Þóra verður annar íslenski leikmaðurinn í LdB Malmö því fyrir er hjá félaginu Dóra Stefánsdóttir leikmaður íslenska landsliðsins.

Orðrómur hefur verið um að Ásthildur verði aðstoðarþjálfari hjá LdB Malmö en ekkert kemur fram í Morgunblaðinu um hvort af því verði.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.