Fotbolti.net
09.12.07 - 17:47
Magnús Már Einarsson

Jóhann Hreiðarsson í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Jóhann Hreiðarsson í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: Dalvík/Reynir

Miðjumaðurinn Jóhann Hreiðarsson hefur gert samning um að gerast spilandi aðstoðarþjálfari hjá Dalvík/Reyni í þriðju deild.
Jóhann hefur áður leikið með Dalvík en hann hefur undanfarin ár verið á mála hjá Þrótti.

Nú hafa félögin hins vegar komist að samkomulagi um félagaskiptin og Jóhann mun auk þess að spila með Dalvík/Reyni aðstoða Örlyg Þór Helgason við þjálfun félagsins.

Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur átt við þrálát nárameiðsli að stríða undanfarin tvö ár og einungis leikið ellefu leiki í fyrstu deildinni með Þrótti á þeim tíma, þar af einungis fjóra í sumar.

Jóhann sem hefur einnig leikið með Val og Víkingi hér á landi, lék með Dalvík í 1.deildinni frá 1999-2001 en á þeim tíma skoraði hann 21 mark í 46 leikjum með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.