Fotbolti.net
10.01.07 - 18:55
Guðmundur Dagur Ólafsson

Franskur U21 árs landsliðsmaður til Portsmouth (Staðfest)

Harry Redknapp hefur fengið miðjumann til liðs við Portsmouth

Harry Redknapp hefur fengið miðjumann til liðs við Portsmouth

Canon

Mynd: Getty Images

Franska liðið Rennes hefur staðfest að franski U21 árs landsliðsmaðurinn Arnold Mvuemba hefur gengið til liðs við Portsmouth og mun hann vera á láni hjá liðinu til loka tímabilsins og getur Portsmouth þá keypt hann.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur ekki náð að vinna sér fast sæti í Rennes en hann fór á reynslu til Portsmouth í síðasta mánuði og vakti athygli Harry Redknapp, knattspyrnustjóra liðsins.

Mvuemba hefur spilað 33 deildarleiki fyrir Rennes en fyrsti leikur hans fyrir liðið var í janúar 2004 og er hann fyrstu kaup Redknapp í janúarglugganum. Þrátt fyrir að Mvuemba, sem spilar stöðu miðjumanns, hafi ekki náð að vinna sér fast sæti í aðalliði Rennes þá hefur hann spilað vel með varaliði félagsins.

Þá mun miðjumaðurinn Youssef Hadji fara frá Portsmouth á næstu dögum og er talið að franska liðið Nancy vilji fá hann til sín.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.