Fotbolti.net
10.01.08 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson

Arsenal lánar Merida til Real Sociedad (Staðfest)

Arsenal lánar Merida til Real Sociedad (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Topplið ensku úrvaldsdeildarinnar, Arsenal hefur lánað Fran Merida til Real Sociedad.
Merida er 17 ára gamall og stóðst læknisskoðun hjá Sociedad sem leikur í næst efstu deild á Spáni.

Merida sem kemur frá Spáni hefur komið við sögu í þremur leikjum hjá Arsenal á leiktíðinni en í öll skiptin hefur hann komið inná sem varamaður í deildarbikarnum.

Merida gekk til liðs við Arsenal sumarið 2006 og þykir gríðarlega efnilegur.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.