10.01.09 - 10:09
Hafliði Breiðfjörð
Dean Windass til Oldham (Staðfest)

Dean Windass fagnar með Hull.

Mynd: Getty Images

Dean Windass fagnar með Hull.

Mynd: Getty Images
Dean Windass framherji Hull City hefur verið lánaður til Oldham City út tímabilið. Nokkur félög í ensku Championship deildinni sem er næst efsta deild þar í landi höfðu viljað fá Windass í sínar raðir eftir að ljóst var að hann færi frá Hull í janúar en Oldham sem er í 1. deildinni, þriðju efstu deild, vann kapphlaupið.
Windass skoraði sigurmarkið í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni gegn Bristol City í maí og þar með komst Hull City í fyrsta sinn í sögu félagsins í úrvalsdeildina.
Hann var hinsvegar ekki ánægður með tækifærin sem hann fékk í úrvalsdeildinni undir stjórn Phil Brown og orðrómur var um að þeir töluðust ekki við.
Windass getur verið með Oldham gegn Hartlepool í ensku 1. deildinni í dag en ekki er ljóst hvort John Sheridan stóri Oldham gefur honum sæti í byrjunarliðinu.
Windass er 39 ára gamall og hefur fyrir löngu sannað sig sem markaskorarai en hann hefur komið víða við, leikið með liðum eins og Aberdeen, Oxford, Bradford og Middlesbrough.

Heimild: Sky