Fotbolti.net
10.01.12 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Pétur Már til Leiknis í Breiðholti (Staðfest)

Pétur og Arnar Einarsson, formaður Leiknis.

Pétur og Arnar Einarsson, formaður Leiknis.

Canon

Mynd: Heimasíða Leiknis

Leiknir Reykjavík úr fyrstu deildinni hefur fengið Pétur Már Harðarson til liðs við sig frá Gróttu.
Pétur Már, sem getur leikið allar stöður framarlega á vellinum og á miðjunni, hefur æft með Leiknismönnum í haust og í gær skrifaði hann undir samning við félagið.

,,Leiknismenn bjóða Pétur hjartanlega velkomin til liðsins og vænta mikils til af honum á komandi tímabili,\" segir á heimasíðu Leiknis.

Pétur hefur mestmegnis leikið með Gróttu á sínum ferli en í öðrum flokki fór hann í eitt ár til Bröndby í Danmörku auk þess sem hann var á mála hjá KR.

Þessi 22 ára gamli leikmaður hóf snemma leik með Gróttu í meistarflokki en árið 2005 lék hann sinn fyrsta leik þá einungis 16 ára gamall. Samtals hefur Pétur leikið 88 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 19 mörk.

Heimild: Heimasíða Leiknis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.