10.01.12 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Donadoni ráðinn þjálfari Parma (Staðfest)

Roberto Donadoni

Mynd: Getty Images

Roberto Donadoni

Mynd: Getty Images
Roberto Donadon, fyrrum landsliðsþjálfari ítalska landsliðsins hefur verið ráðinn þjálfari Parma í Seríu A á Ítalíu.
Parma rak Franco Colomba frá félaginu eftir 5-0 tap liðsins gegn Inter Milan um helgina og varð hann þar með ellefti þjálfarinn á tímabilinu sem er rekinn úr efstu deild á Ítalíu.
Félagið tilkynnti Roberto Donadoni í gær sem næsta þjálfara liðsins, en fyrsti leikur hans verður gegn Siena þann 15. janúar næstkomandi. Parma situr í 15. sæti deildarinnar með 19 stig eftir 17 umferðir.
Donadoni þjálfaði ítalska landsliðið frá 2006 til 2008, en var rekinn eftir að liðið datt út fyrir Spánverjum í 8-liða úrslitum Evrópumótsins árið 2008.

Heimild: FIFA