10.01.12 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Nick Barmby tekur við Hull (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nick Barmby hefur formlega verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá Hull City í ensku Championship deildinni.
Barmby var leikmaður með Hull áður en hann tók tímabundið við liðinu þegar Nigel Pearson hætti til að taka við Leicester í nóvember.

Barmby, sem er 37 ára, hefur núna lagt skóna á hilluna til að einbeita sér algjörlega að knattspyrnustjóra starfinu.
,,Það er mikill heiður fyrir mig að verða stjóri hjá heimafélagi mínu og ég hlakka til að taka þetta verkefni að mér,\" sagði Barmby.
Barmby lék áður meðal annars með Everton og Liverpool en Hull hefur gengið vel undir hans stjórn og ekki tapað í síðustu tíu deildarleikjum.

Heimild: BBC