Fotbolti.net
10.01.12 - 13:22
Alexander Freyr Tamimi

Mark Hughes ráðinn knattspyrnustjóri QPR (Staðfest)

Mark Hughes.

Mark Hughes.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Queens Park Rangers hefur staðfest ráðningu Mark Hughes sem knattspyrnustjóra, en viðræður við þennan fyrrum stjóra Fulham, Manchester City og Blackburn höfðu átt sér stað um nokkurt skeið.
Neil Warnock var rekinn frá félaginu á dögunum eftir að hafa komið liðinu upp í deild þeirra bestu og er talið að það hafi verið vegna ósættis hans við eigandann Tony Fernandes. Nú hefur Hughes verið ráðinn í hans stað og skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.

Hughes segist í viðtali við heimasíðu QPR vera himinlifandi með nýja starfið.

,,Það er frábær tilfinning að vera kominn aftur í fótboltann og að vera orðinn stjóri QPR,\" sagði Hughes.

,,Ég geri mér fullkomlega grein fyrir áskoruninni sem er framundan, bæði til skamms tíma og lengri tíma, og ég er mjög spenntur.\"

,,Forgangsatriði mitt er að tryggja sæti okkar í ensku úrvalsdeildinni, en ég tel að framtíðin sé mjög björt.\"


Líkt og alþjóð veit leikur Heiðar Helguson með QPR og er spurning hvaða áhrif ráðning Hughes mun hafa á hans stöðu innan félagsins. Warnock var mjög hrifinn af Dalvíkingnum, en hann er langmarkahæsti leikmaður QPR á tímabilinu.

Heimild: Vefur QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.