Fotbolti.net
10.01.12 - 17:24
Elvar Geir Magnússon

Stefán Gíslason í Oud-Heverlee Leuven (Staðfest)

Stefán Gíslason í Oud-Heverlee Leuven (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Gíslason hefur skrifað undir samning við Oud-Heverlee Leuven í belgísku úrvalsdeildinni. Stefán hefur æft með liðinu síðustu vikur og stóð sig það vel að honum var boðinn samningur sem hann tók.

Samningurinn er til eins og hálfs árs. Stefán er 31 árs miðjumaður en hann var síðast á mála hjá Lilleström í Noregi en yfirgaf félagið í október.
Hann verður löglegur í næsta leik sem er gegn Lokeren.

Lið Leuven er í 11. sæti af 16 liðum í Belgíu.

Stefán er gríðarlega reynslumikill og hefur spilað víða í Skandinavíu. Þá á hann 33 landsleiki að baki fyrir Ísland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.