Fotbolti.net
10.01.12 - 22:39
Hafliði Breiðfjörð

FH lánar Helga Val Pálsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Helgi Valur sem er hér hægra megin á myndinni er genginn til liðs við BÍ/Bolungarvík.

Helgi Valur sem er hér hægra megin á myndinni er genginn til liðs við BÍ/Bolungarvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur lánað bakvörðinn Helga Val Pálsson til BÍ/Bolungarvíkur út komandi leiktíð í 1. deild karla en frá þessu var greint á vef BÍ/Bolungarvíkur í kvöld.
Helgi Valur er hægri bakvörður sem verður 19 ára gamall á þessu ári. Hann hefur spilað með FH á undirbúningsmótunum.

Hann kom inná í þremur meistaraflokksleikjum sumarið 2010, einum í Pepsi-deildinni, einum í Valitor bikarnum og í leik meistara meistaranna.

Hann er sonur söngvarans Páls Rósinkranz Óskarssonar og á að baki tvo leiki með U19 ára landsliði Íslands.

Jörundur Áki Sveinsson sem hefur verið aðstoðarþjálfari FH undanfarin ár þjálfar BÍ/Bolungarvík á næstu leiktíð og þekkir vel til Helga Vals.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Jörundur fær til liðs við BÍ/Bolungarvík. Félagið hefur áður fengið Hauk Ólafsson, Hafstein Rúnar Helgason, Harald Hróðmarsson og Portúgalann Jorge Santos til liðs við sig í haust auk þess sem Pétur Markan sem var á láni frá Víkingi á síðari hluta síðustu leiktíðar samdi við félagið í gær. Þá mun danski varnarmaðurinn Dennis Nielsen verða á reynslu hjá þeim á næstu dögum.

Heimild: BiBol.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.