10.02.09 - 08:02
Magnús Már Einarsson
Kristján Óli og Sigurður Ingi í Reyni S. (Staðfest)

Kristján Óli Sigurðsson og Sigurður Bjarni Sigurðsson.

Mynd: Reynir

Kristófer Sigurgeirsson, þjálfari Reynis.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Reynir Sandgerði hefur fengið Kristján Óla Sigurðsson og Sigurð Inga Vilhjálmsson til liðs við sig. Kristján Óli kemur til Reynis frá Selfyssingum og Sigurður Ingi kemur frá KFS.
Kristján Óli er 28 ára kantmaður en hann lék með Selfyssingum síðari hluta síðastliðið sumars. Fyrri hluta sumars var hann spilandi þjálfari hjá Hvöt á Blönduósi.
Mest allan sinn feril hefur Kristján Óli hins vegar leikið með Breiðablik en hann skoraði 41 mark í 187 mótsleikjum með liðinu frá 1999-2007.
,,Ég er mjög ánægður að fá Stjána til mín í Sandgerði, við spiluðum saman í nokkur ár hjá Breiðablik svo við þekkjumst mjög vel og er ég sannfærður um að hann á eftir að gera heilmikið fyrir okkur í sumar,\" sagði Kristófer Sigurgeirsson þjálfari Reynis við Fótbolta.net.
,,Stjáni er mjög grimmur og ákveðinn og tel ég að hann falli inn í hópinn hjá okkur eins og glassúr á snúð.\"
,,Kristó náði að plata mig í þetta. Hann var búinn að reyna mikið og þetta tókst loksins hjá honum,\" sagði Kristján Óli við Fótbolta.net.
Sigurður Ingi er 25 ára gamall en hann hefur leikið með KFS allan sinn meistaraflokksferil. Þar hefur hann verið nokkuð iðinn við markaskorun og í fyrra skoraði hann meðal annars tíu mörk í þriðju deildinni.
,,Sigurður Ingi er búinn að gera fína hluti hjá KFS undanfarin ár, getur spilað flestar stöður á vellinum og skorar reglulega.\"
,,Hann skoraði til að mynda 10 mörk í 11 leikjum í fyrra og var markahæstur í A-riðli í 3. deildinni. Svo ég býst við miklu af honum, eins og öllum mínum leikmönnum,\" sagði Kristófer.
Þá er ljóst að Sigurður Bjarni Sigurðsson sem var varamarkvörður Vals sumarið 2007, mun verða markmannsþjálfari hjá Reynismönnum og verður til taks ef liðið lendir í einhverjum markmannsvandræðum.