Fotbolti.net
10.02.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jóhann Rúnar og Jóhann Kristinn taka við Völsungi (Staðfest)

Jóhann Rúnar og Jóhann Kristinn taka við Völsungi (Staðfest)
Canon

Mynd: Völsungur

Völsungur frá Húsavík hefur ráðið þjálfara hjá meistaraflokki karla fyrir komandi sumar en nafnarnir Jóhann Rúnar Pálsson og Jóhann Kristinn Gunnarsson hafa tekið við liðinu.
Jóhann Kristinn þjálfaði meistaraflokk kvenna hjá Völsungi síðastliðið sumar og hann mun einnig sinna því starfi í sumar samhliða því að þjálfa meistaraflokk karla.

Völsungur tefldi fram ungu liði í annarri deildinni síðastliðið sumar en varð að lokum að bíta í það súra epli að falla niður um deild. Húsvíkingar setja hins vegar stefnuna beint upp í aðra deild að nýju.

,,Þrátt fyrir að hafa misst sterka stráka í vetur þá erum við bjartsýnir með það sem við höfum. Það er svo annað mál hvað gerist í júlí ef úrslitakeppnin verður innan seilingar. Þá er alveg eins líklegt að einhver ný andlit sjáist á vellinum með okkur,\" sagði Jóhann Kristinn í viðtali við 640.is

,,Það er náttúrulega algjörlega langefst í huga okkar allra sem að þessu komum að hífa liðið uppúr þessari deild. Þarna eigum við engan veginn heima og félag eins og Völsungur á hreinlega að gefa allt í botn til að leiðrétta þennan misskilning að hafa fallið.\"

Heimild: 640.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.